Leiga
Íbúðafélag Visku og FÍN starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir. Í lögunum eru tilgreind tekju-og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Tekju- og eignamörk fyrir árið 2026
Tekjur leigjenda almennra íbúða skulu ekki nema hærri fjárhæð en:
9.138.000 kr. á ári fyrir hvern einstakling eða 761.500 kr. á mánuði.
13.500.000 kr. á ári fyrir hjón og sambúðarfólk eða 1.125.000 kr. á mánuði.
2.254.000 kr. á ári fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu eða 187.833 kr. á mánuði.
Heildareign skal ekki nema hærri fjárhæð en 9.874.000 kr.
Leiguverð
Miðað er við að greiðslubyrði leigu fari ekki yfir 25% af heildartekjum leigjenda að teknu tilliti til húsnæðisbóta.
Úthlutun
Gert er ráð fyrir að fyrsta úthlutun hjá félaginu verði á árinu 2027 og mun íbúðum verða úthlutað eftir röð félagsfólks á biðlista félagsins. Opið er fyrir skráningu á biðlista til 31. desember 2026, og verður umsóknum raðað í númeraröð 15. janúar 2027 með slembiröðun sem verður framkvæmd með viðurkenndum aðferðum.